Leita í fréttum mbl.is

Ábyrgðarleysi stjórnmálamanna?

Best að láta vita að ég er ennþá sprell lifandi, en hefur undanfarna daga verið að hugsa um hvað ég eigi að gera við þetta blogg. Hvort ég eigi að halda áfram með það, eða að láta það róa og leyfa öðrum að tjá sig hér í bloggheiminum. Reyndar hafa síðustu mánuðir orðið mjög erfiðir, og getur maður varla farið að slappa af fyrr en 14. des. Vonandi. En síðustu vikur hefur verið gríðarlega mikið að gera hjá manni, það fyrsta og sennilega það merkilegast var að í haust tók ég við ritstjórn hjá vefriti Ungra jafnaðarmanna, politik.is, og margir klukkutímar farið í vinnu í sambandi við síðuna. Í dag birtist t.a.m. grein eftir mig á vefnum sem nefnist ,, Ber almenningur ábyrgð á ábyrgðarleysi stjórnmálamanna?". Síðan fór líka mikill tími hjá mér í að skrifa ritgerð í þróunarmálum þar sem ég var að bera saman skipulagi og uppbyggingu þróunaraðstoðar á íslandi og Danmerkur. Komu niðurstöðurnar ekki á óvart, en bráðlega mun ég þó koma með nokkrar greinar um þetta málefni. Síðan er ég líka að gera rannsóknarverkefni hérna upp í skóla, sem nefnist sjómennskan og draumar. Er ég að safna saman nokkrum draumum sjómanna og tengja þá við menningu og starfshætti sjómanna. Afar skemmtilegar pælingar þarna á ferð, enda sjávarútvegur lengi vel okkar aðal atvinnugrein, og þjóðarbúskapurinn sveiflaðist oft eftir afkomu sjávarútvegsins.

Hvet fólk eindregið til að vera duglegt að skoða vef okkar Ungra jafnaðarmanna. Vonandi á hann einungis eftir að eflast enn frekar.

kv,

Sölmundur Karl Pálsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Páll Jóhannesson

Góð grein Sölmundur - eins og talað úr mínum munni.

Páll Jóhannesson, 23.11.2007 kl. 18:12

2 Smámynd: Ólöf Jóhanna Pálsdóttir

Veit að það er nóg að gera hjá þér, en ekki hætta að blogga. Ég var ánægð þegar ég sá að þú varst ekki alveg hættur. Það er ekki aðal atriðið að skrifa mikið bara aðeins að láta heyra í sér. Svo ætla ég að lesa greinarnar þínar.

Ólöf Jóhanna Pálsdóttir, 23.11.2007 kl. 18:26

3 Smámynd: Hrönn Jóhannesdóttir

Já Páll eins og talað út úr þínum munni næstu því þinn munnur enda áttu mikið í honum Sölli minn þú stendur þig eins og hetja og gerir alla hluti af mikilli samvisku það væri margur sem mætti taka þig til fyrirmyndar Kveðja frá Suðurnesjum

Hrönn Jóhannesdóttir, 26.11.2007 kl. 12:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Sölmundur Karl Pálsson
Sölmundur Karl Pálsson
Nemi í samfélags- og hagþróunarfræði við Háskólann á Akureyri. Þórsari, Nallari, en fyrst og fremst jafnaðarmaður.
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband